Um / About

16. janúar 2007

Garðar er fæddur árið 1935 í Reykjavík þar sem hann ólst upp.  Garðar flutti með fjölskyldu sína í Garðhrepp árið 1968 og er því rótgróinn Garðbæingur. Áhugi hans á myndlist, sér í lagi landslagsmálverkinu, vaknaði snemma og hefur hann sótt flestar myndlistarsýningar og fylgst með þróun myndlistar frá því í kringum 1950 – eða í ríflega hálfa öld.  Ekki eru þó nema rúm tuttugu ár síðan hann fór sjálfur að mála í frístundum og er sjálfmenntaður í þeim fræðum.  Garðar sækir efnivið í landslag og náttúru Íslands. 

Frá árinu 1995 má segja að Garðar hafi helgað sig málverkinu.  Hann hélt sína fyrstu sýningu í Blómavali við Sigtún, árið 1984 og síðan hefur hann haldið fjölmargar sýningar, m.a. í Ásmundarsal, Listhúsinu við Engjateig, Eden, hjá ÁTVR í Kringlunni, Domus Medica og Landsbankanum Laugavegi 77.  Hann hefur sýnt verk sín í Garðabæ, Grindavík, Kópavogi, Garðyrkjuskólanum í Hveragerði, Smáralind og víðar. Ofast eru þetta smærri verk en að jafnaði hefur hann haldið tvær stórar sýningar árlega. Garðar hefur einnig tekið þátt í handverkssýningum í Laugardalshöll, handsverksmörkuðum og tekið þátt í samsýningum.  Síðustu tíu árin hefur hann farið með litlar sýningar á fjölmarga vinnustaði, stofnanir og stórmarkaði hér á Stór-Reykjavíkursvæðinu. Þá tók hann einnig þátt í New York Art Expo árið 2007 ásamt nokkrum öðrum íslenskum listamönnum.

Eins og sjá má af þessari upptalningu sýnir Garðar málverk sín gjarnan á óhefðbundnum sýningarstöðum þar sem almenningur gengur um garð, enda segir hann: “Ég hef alla tíð málað fyrir fólkið og færi þess vegna listina að fólkinu”.

Gardar was born in the year 1935 in Reykjavik. At quite a young age Gardar showed a talent at drawing and expressed his admiration for paintings and drawings. In his teenage years Gardar attended all art shows available in Reykjavik and closest surroundings, which at that time were almost the only art shows in Iceland. Since then he has followed the evolution of Icelandic painting - and …” I was not always happy for what I saw” says Gardar.Some twenty years ago, Gardar began to paint; at first as a pastime hobby. But since a lot of people showed interest in his work he became more serious about it. For the last ten years Gar3ar has devoted himself to his art. As a painter, Gar5ar has never had any schooling or guidance and is completely self educated. As Gardar himself says …” I believe that learning by your mistakes is the best schooling that you can get”.

Gardar is quite a productive painter. Since he began painting he has held some 35 - 40 big exhibitions. He also has participated in some exhibitions with other artists. Two newly built hotels have decorated their rooms and salons with his paintings.

Gardar mostly uses untraditional places for his exhibitions: malls, banks, big markets, institutes of all kind and even in the open. Because his opinion is - bring the art to the people - not the other way around!



Lokað er fyrir ummæli.