Gestabók / Guestbook

Rita í gestabók

15 hafa ritað í gestabókina

  1. Elvar Guðmundsson þann 13. október 2009

    Góðan dag Garðar.
    Sá verk þín í Glæsibæ um daginn og fannst mjög flott.
    Getur þú málað litla mynd með ljósmynd sem fyrirmynd? Er að hugsa hana sem jólagjöf.
    Annað, er að gera verkefni í tengslum við MBA nám við HÍ. Það snýst um að setja á laggirnar uppboðsvefsíðu í líkingu við eBay. Þar ætlum við að vera með vettvang sérstaklega ætluðum listamönnum til að koma verkum sínum á framfæri. Gætir þú hugsað þér að vera með ákveðin verk á síðunni sem hægt væri að bjóða í?
    Heyri vonandi frá þér varðandi þetta.
    kveðja,
    Elvar

  2. Steinunn Einarsdottir þann 15. ágúst 2009

    Sæll og blessaður Garðar minn,
    Nú er að koma að því að sýna í Menningarmiðstöð Gerðubergs og er ég að taka saman gestalista fyrir þau, en sýningin verður frá 19.september til november. Ég var að leita að kortinu þínu til að sjá hvar þið hjónin búið til að setja ykkur á listann, það væri nú gaman að sjá ykkur aftur.
    Þú hefur aldeilis verið iðinn við listina Garðar og er ég mjög hrifin af myndunum þínum. Það væri gaman ef þú leyfðir mér að fylgjast með þegar þú sýnir næst.
    Það er gaman að sjá að Lísa skrifaði þér, þar sem ég hef kennt henni og fleirum á Höfn í þó nokkur ár.
    Vonast til að heyra frá ykkur Garðar, með kærri kveðju Steina New York fari!

  3. Eyjólfur prins þann 2. apríl 2009

    Sæll og blessaður, þú kemur bara skemmtilega á óvart.
    Ekki datt mér í hug að þú hefðir þennan hæfileika:)

    kveðja prinsinn

  4. Sigurður þann 26. september 2008

    Sæll Garðar,
    Eftirfarandi fyrirtæki getur orðið þér að liði við að flytja málverkin frá New York til Reykjavíkur.

    Ice-Global Logistics
    148-02 Guy R. Brewer Blvd.
    Jamaica NY 11434
    USA
    Tel: +1 718 553 6628
    Fax: +1 718 553 6634
    Email: igl@igl.is
    Website: http://www.igl.is/
    Contact:
    Björgvin Friðriksson
    bjorgvin@igl.is
    Olivia Jerdan
    olivia@igl.is

  5. Lísa þann 8. apríl 2008

    Góðan daginn..
    ‘eg mátti til með að líta hér inn.. varð svo forvitin eftir að hafa heyrt viðtalið í morgun.
    Þetta eru skemmtilegar myndir hjá þér.. og bara sjálflærður í myndlistinni.. það er ekki slæmt.
    Ég er húsmóðir á Hornafirði og er að fikta við þetta líka, þetta er ofboðslega gefandi og skemmtilegt. Gangi þér vel í framtíðinni.. Kv. Lísa
    P.S. læt fylgja hér slóð á nokkrar af myndunum mínum, þær eru nokkurra ára gamlar, og eins og sjá má, þá er ég MJÖG hrifin af fjallinu sem blasir við mér heima.
    http://www.hornafjordur.is/myndasafn/album/102/

  6. Valgeir "Valli" þann 18. janúar 2008

    Fyrst að ég rakst á síðuna hjá þér Garðar minn, þá langaði mig rosalega að kasta til ykkar smá kveðju enda orðið svolítið síðan ég hef hitt ykkur ;)
    Bið innilega að heilsa öllum á svæðinu og vonandi hafið þið það alveg frábært á nýju ári.

    Kveðja
    Valli

  7. Margrét Guðmundsdóttir þann 19. desember 2007

    Gleðileg Jíl :-)

  8. Margrét Guðmundsdóttir þann 27. nóvember 2007

    Sæll Garðar. Takk fyrir sýninguna í Domus Medica. Mér finnast myndirnir þínar mjög fallegar.Ég ætla að geyma nafnspjaldið þitt því mér segir svo hugur að við eigum eftir að sjást aftur.Gangi þér vel og hafðu það gott. Góð kvejða frá Margréti

  9. Ragnar Kristjánson þann 6. september 2007

    Fékk stutt heimfaraleyfi og stóðst ekki mátið og kíkti á heimasíðuna þína. Þegar búinn að finna málverk sem væri gaman að eiga. Mögnuð málverk. Á
    eftir að hafa samband er ég losna úr prísundinni eins og þú.
    Kv. sá hunsbitni.

  10. Rúnar Geirmundsson þann 7. júlí 2007

    Sæl góðar myndir kv Rúnar Geirmundsson

  11. Almar Grímsson þann 17. maí 2007

    Hafðu samband við ræðismannasskrifstofuna í Winnipeg 545 7841

  12. gudrun þann 13. febrúar 2007

    halló pabbi!

  13. Dossa þann 12. febrúar 2007

    Flotta síðan elsku pabbi minn ;)

  14. Mike þann 26. janúar 2007

    Gardar,

    You’ve joined the 21st century! Congratulations! I like your site. A great beginning.

    Mike Johnson

  15. Valerie þann 26. janúar 2007

    Hi Gardar!

    Great site in the making!

    Valerie