Málverkasýning á Austurvelli á Menningarnótt til styrktar Umhyggju
3. september 2007
Sölusýning var á Austurvelli á Menningarnótt á málverkum eftir Garðar Jökulsson en allur ágóði af sölunni rennur til Umhyggju, félags til stuðnings langveikum börnum. Garðar hefur ákveðið að mála á næstu misserum umtalsvert magn af myndum, eða alls um 200 myndir, og gefa þær Umhyggju en söluandvirði myndanna verður notað til styrktar starfsemi félagsins. Fyrstu myndirnar sem Garðar hefur málað í þessum tilgangi voru sýndar utandyra á Austurvelli á Menningarnótt og svo í Perlunni.
Þeir sem áhuga hafa á að styrkja þetta góða málefni geta haft samband við skrifstofu Umhyggju eða við Garðar sjálfan.
Rita ummæli