Sýning í Domus Medica við Grettisgötu
16. maí 2007
Garðar Jökulsson hefur nýverið opnað sýningu á málverkum í Domus Medica við Grettisgötu. Þarna eru 10 myndir málaðar á þessu ári – ásamt nokkrum eldri. Myndirnar prýða veggi kaffi- og veitingasölunnar í Domus Medica. “Sé þörf fyrir myndir einhversstaðar, þá er það á svona vettvangi” – segir Garðar. Opið er á venjulegum afgreiðslutíma Domus Medica og öllum velkomið að líta inn.
Rita ummæli