Garðar verður á ArtExpo New York 2007 í mars
30. janúar 2007
Garðari hefur ásamt nokkrum öðrum íslenskum listamönnum verið boðið að senda verk á sýninguna “New York Art Expo” (www.artexpos.com), sem opnar 1.mars nk.
Þetta boð kom frá bandarískum hjónum, Valerie og Michael Johnson, sem búsett voru á Íslandi um árabil. Þau hjón eru miklir listunnendur og fengu strax mikinn áhuga á íslenskri list og listamönnum. Johnson hjónin snéru aftir til USA og eru að opna nýtt gallerý “Fire and Ice Art” í heimabæ sínum skammt frá Washington D.C. Þar munu þau kynna íslenska list auk þess að koma henni á framfæri sem víðast í USA.
Garðar hefur þegar sent frá sér fjöldann allan af málverkum vestur yfir haf. Nokkrar þessara mynda verða settar upp á “New York Art Expo”, en síðar munu öll verkin sýnd á opnunarsýningu “Fire and Ice Art”.
Rita ummæli