Eldgosið á Fimmvörðuhálsi
19. apríl 2010
Hér gefur að líta eldgosið á Fimmvörðuhálsi séð með augum Garðars. Smellið á myndina til að sjá fleiri…
![]() |
| 2010_04_18 Eldgosið á Fimmvörðuhálsi |
Garðar opnar málverkasýningu í Listasalnum í Garðabæ
9. desember 2009
Garðar opnar málverkasýningu í Listasalnum á Garðatorgi 7 í Garðabæ, laugardaginn 12.desember kl.14. Sýningin mun standa til 10.janúar og vera opin alla daga kl.17-19. Allir hjartanlega velkomnir.
Sýnt á svölunum í Firði verslanamiðstöð
9. nóvember 2009
![]() |
| Smellið á myndina til að sjá fleiri |
Garðar hefur nú hengt upp verkin sín á svölunum í verslunarmiðstöðinni Firðinum í Hafnarfirði. Þar mun hann sýna næsta hálfa mánuðinn. Þarna eru nýjar myndir sem ekki hafa verið sýndar áður. Myndir væntanlegar…
Garðar sýnir í Kringlunni um þessar mundir
5. október 2009
Þessa dagana er Garðar er með myndir í göngugötu Kringlunnar á 1. hæð (norðan megin). Nú er um að gera að renna við og kíkja á fallegar myndir sem gleðja augað.
Menningarnótt 2009 á Höfðatorgi
5. október 2009
Laugardaginn 22. ágúst 2009 gefst gestum Menningarnætur kostur á að skoða sig um á Höfðatorgi. Garðar Jökulsson myndlistamaður sýnir olíumálverk á jarðhæð og á 19. hæð milli kl.13 og 17.
Ýmislegt fleira verður í boði á Höfðatorgi á Menningarnótt, nánar hér.
Garðar sýnir í Glæsibæ
20. júní 2009
![]() |
| 2009_06_14 GJök málverkasýning í Glæsibæ |
Garðar hefur sett upp sýningu í Glæsibæ. Þar eru til sýnis auk nýrra mynda talsvert af eldri verkum sem ekki hafa verið sýnd hér á landi áður. Margar myndanna málaði Garðar árið 2006. Sýningin mun standa yfir í óákveðinn tíma, væntanlega amk. fram í miðjan júlí.
Sýning í Saltfisksetrinu 4.apríl - 4.maí 2009
30. mars 2009
![]() |
| 2009-04 Sýning Garðars í Saltfisksetrinu |
Þann 4.apríl opnar Garðar sýningu í listsýningasal Saltfisksetursins. Opnunin verður frá kl.14-18 og eru allir velkomnir. Sýningin mun síðan standa fram til 4.maí.
Saltfisksetrið er í Hafnargötu 12 í Grindavík, sjá nánar http://www.saltfisksetur.is/?id=298
http://www.vf.is/Frettir/40144/default.aspx
Garðar sýnir málverk að Suðurlandsbraut 8
23. mars 2008
Þann 4.apríl s.l. opnaði Garðar Jökulsson málverkasýningu að Suðurlandsbraut 8 (Fálkahúsinu). Þarna sýnir Garðar í rúmgóðum og björtum sal 22 stór málverk, flest máluð á þessu og síðasta ári. Sýningin er opin alla daga frá kl.11-15 (og einnig eftir samkomulagi). Verkin eru öll til sölu, þau eru flest í stærðinni 100×130 cm. Nánari upplýsingar veitir Garðar í síma 6996847. Smellið á myndina til að skoða fleiri málverk…
![]() |
| Málverk eftir Garðar Jökulsson |
Málverkasýning á Austurvelli á Menningarnótt til styrktar Umhyggju
3. september 2007
Sölusýning var á Austurvelli á Menningarnótt á málverkum eftir Garðar Jökulsson en allur ágóði af sölunni rennur til Umhyggju, félags til stuðnings langveikum börnum. Garðar hefur ákveðið að mála á næstu misserum umtalsvert magn af myndum, eða alls um 200 myndir, og gefa þær Umhyggju en söluandvirði myndanna verður notað til styrktar starfsemi félagsins. Fyrstu myndirnar sem Garðar hefur málað í þessum tilgangi voru sýndar utandyra á Austurvelli á Menningarnótt og svo í Perlunni.
Þeir sem áhuga hafa á að styrkja þetta góða málefni geta haft samband við skrifstofu Umhyggju eða við Garðar sjálfan.
Sýning í Domus Medica við Grettisgötu
16. maí 2007
Garðar Jökulsson hefur nýverið opnað sýningu á málverkum í Domus Medica við Grettisgötu. Þarna eru 10 myndir málaðar á þessu ári – ásamt nokkrum eldri. Myndirnar prýða veggi kaffi- og veitingasölunnar í Domus Medica. “Sé þörf fyrir myndir einhversstaðar, þá er það á svona vettvangi” – segir Garðar. Opið er á venjulegum afgreiðslutíma Domus Medica og öllum velkomið að líta inn.
Nýjustu málverkin / The latest paintings
16. maí 2007
Hér er sýnishorn af nýjustu málverkunum. / Here you can see the latest paintings.
Smelltu á myndina til að sjá fleiri. / Click on the picture to view some more.
![]() |
| 20070508 GJ myndir |
Paintings available at Fire & Ice Art in the USA
26. febrúar 2007
Click the picture to view all the paintings that are now available at Fire and Ice Art gallery in the USA. For further informatin please contact fire_and_ice_art@huges.net or gardarjokulsson@gmail.com
Paintings in USA at the Fire&Iceart gallery
Garðar verður á ArtExpo New York 2007 í mars
30. janúar 2007
Garðari hefur ásamt nokkrum öðrum íslenskum listamönnum verið boðið að senda verk á sýninguna “New York Art Expo” (www.artexpos.com), sem opnar 1.mars nk.
Þetta boð kom frá bandarískum hjónum, Valerie og Michael Johnson, sem búsett voru á Íslandi um árabil. Þau hjón eru miklir listunnendur og fengu strax mikinn áhuga á íslenskri list og listamönnum. Johnson hjónin snéru aftir til USA og eru að opna nýtt gallerý “Fire and Ice Art” í heimabæ sínum skammt frá Washington D.C. Þar munu þau kynna íslenska list auk þess að koma henni á framfæri sem víðast í USA.
Garðar hefur þegar sent frá sér fjöldann allan af málverkum vestur yfir haf. Nokkrar þessara mynda verða settar upp á “New York Art Expo”, en síðar munu öll verkin sýnd á opnunarsýningu “Fire and Ice Art”.
Nokkur sýnishorn af málverkum
23. janúar 2007
Jólamarkaður handverkstæðis Ásgarðs
1. desember 2006
Um klukkan tvö á laugardaginn munu systkinin KK og Ellen Kristjáns flytja nokkur lög og einnig verður boðið upp málverk sem listamaðurinn Garðar Jökulsson hefur gefið Ásgarði. Þá verður veitingasala á staðnum og vonast starfsfólk Ásgarðs til að sem flestir sjái sér fært að kynna sér vöruúrvalið og gæða sér á veitingum. Nánar…
Listaverkasýning í Vínbúðinni Dalvegi
21. september 2006
Listamaðurinn Garðar Jökulsson sýnir nú verk sín í Vínbúðinni Dalvegi og er sýningin sú fyrsta eftir að reglur um sýningu listaverka í vínbúðum tóku gildi. Nánar…
Málverkasýning á safni
2. september 2006
Á Austurvelli á menningarnótt
19. ágúst 2006
Garðar Jökulsson fjallamálari sýnir málverk unnin á þessu og síðasta ári. Garðar verður á staðnum og er tilbúinn til að ræða myndlist og daginn og veginn. Myndirnar eru til sölu, en andvirði tveggja fyrstu myndanna rennur til Langveikra barna. Sýningin er háð veðri. Sjá…
Góðviðrissýning við sundlaugarbakkann
1. ágúst 2006
Garðar Jökulsson listmálari heldur sýningu við sundlaugarbakka Kópavogslaugar. Hann hefur tileinkað sýninguna góða veðrinu og ekki síður hinu ágæta starfsfólki sem sér um að alltaf sé allt í lagi og að gott sé að koma í laugina. Við hvetjum því alla sem geta til að nýta tækifærið og líta við á þessa skemmtilegu sýningu. Nánar…
20060801 Sundlaug Kpavogs
Sýning í Hvammi í Kópavogi
15. mars 2006
Garðar Jökulsson opnaði nýlega málverkasýningu í heilsugæslustöðinni Hvammi, við Hagasmára. Sjá…









